Flest hlutabréf í Asíu byrjuðu vikuna á hækkun, en fjármálafyrirtæki lækkuðu þó í dag. Bréf hrávöruframleiðenda hækkuðu þar sem málmverð hefur hækkað og unnu þá upp lækkun fjármálafyrirtækja, sem lækka vegna slæmrar afkomuspár Australia & New Zealand Banking Group.

MSCI Kyrrahafs vísitalan stóð í stað í dag.

Japanska Nikkei 225 vísitalan hækkaði um 0,1% en kínverska Hang Seng vísitalan lækkaði um 0,2%.

Þá lækkaði Singapore Straits vísitalan um 0,4%.