Hlutabréf lækkuðu í Evrópu í dag eftir að hafa hækkað síðustu tvo daga. Það voru helst fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar.

FTSEurofirst 300 vísitalan lækkaði um 0,4% eftir að hafa hækkað um 4% síðustu tvo daga.

Þá lækkaði FTSE 100 vísitalan í Lundúnum um 0,4%, DAX vísitalan í Frankfurt um 0,5% og AEX vísitalan í Amsterdam um 0,4% Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 0,5%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 1,2% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 0,2%.

Eins og fyrr segir voru það bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins. Þannig lækkaði UBS um 4,7%, breski bankinn Lloyds lækkaði um 4,2% og RBS lækkaði um 3,5%.