Fjármögnunarleigusamningur sem Íslandsbanki gerði við fyrirtæki var dæmdur ólögmætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Íslandsbanki stefndi þrotabúi AB 258 ehf. en varnaraðili hélt því fram að í raun væri um lánasamning að ræða en ekki leigusamning. Um var að ræða lán til kaupa á vinnuvél.

Í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins segir að dómurinn sé í samræmi við Hæstaréttardóm um kaupleigusamninga sem féll í fyrrasumar. Gera má ráð fyrir að dóminum verði áfrýjað til Hæstaréttar og mun niðurstaða sennilega liggja fyrir í byrjun sumars, segja SI.

Umfjöllun Samtaka Iðnaðarins:

„Í dómnum segir meðal annars að ekki verði séð að sóknaraðili (fjármögnunarleigan) hafi komið að kaupum á vélinni sem lánað var fyrir að öðru leyti en því að hann hafi verið skráður kaupandi til tryggingar á efndum á lánssamningi. Varnaraðili (verktakinn – notandinn) fór hins vegar samkvæmt framansögðu með öll réttindi og skyldur kaupanda og átti allar kröfur á hendur seljanda vegna hugsanlegra vanefnda.

Af gögnum málsins má ráða að umsamið leiguverð hafi verið ákvarðað út frá kostnaði sóknaraðila við fjármögnun kaupanna, en ekki raunverulegu verðmæti vélarinnar. Greiðslur varnaraðila til sóknaraðila tóku mið af því að endurgreiða upprunalegan höfuðstól, þ.e. kaupverð vélarinnar, að viðbættum vöxtum og vaxtaálagi.

Svo virðist sem meðferð kaupleigu- og fjármögnunarleigusamninga sem sóknaraðili gerði hafi efnislega verið eins. Um samningana giltu að stofni til sömu skilmálar, almennir samningsskilmálar sóknaraðila. Einnig er litið til þess að sóknaraðili færði ekki umrædda vél sem eign í bókhaldi sínu heldur færði hann kröfuna samkvæmt samningi aðila til eignar og voru tekjur af samningum vegna fjármögnunarleigu færðar sem vaxtatekjur en ekki leigutekjur.

Við úrlausn málsins verður enn fremur að horfa til þess að greiðslur samkvæmt samningi aðila báru vexti, en slík ákvæði eiga engan veginn við í leigusamningum.

Þessi niðurstaða er gríðarlega mikilvæg fyrir þau ffjölmörgu fyrirtæki sem fjármögnuðu tæki og tól með þessum samningum. Eiginfjárstaða margra mun batna og reksturinn verður léttari. Samtök iðnaðins fagna dómnum en samtökin lögðu fram lögfræðiaðstoð við undirbúning málsins.“

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur .