Í tilkynningu frá FL Group segir að félagið hafi á síðustu dögum átt í viðræðum við þriðja aðila, sem fela meðal annars í sér mat á ýmsum fjárfestingakostum og fjármögnun þeirra, með það markmið að efla enn frekar eignasafn félagsins og fjárhagslegan styrk.

Þeim viðræðum er hinsvegar ekki lokið og  óvíst hvort  þeim ljúki með samkomulagi. Ef þeim viðræðum lýkur með samkomulagi mun félagið upplýsa um það án tafar, samkvæmt því sem segir í tilkynningunni.

Gengi FKL Group hefur lækkað mikið á markaði í morgun og var lækkunin rúm 4% rétt fyrir klukkan 11.00.