FL Group stendur fyrir kynningardegi fyrir markaðsaðila (e. Capital Markets Day) í Hollandi á morgun fimmtudag. Að sögn Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns félagsins, verður einkum lögð áhersla á að kynna Icelandair, Sterling og Refresco, óskráðar eignir félagsins.

Sömuleiðis verður verksmiðja Refresco í Hollandi skoðuð. Bréf félagsins hafa hækkað um 3,69% það sem af er degi og er markaðsvirði félagsins nú 181,1 milljarðar króna.