FL Group hefur selt 12,69% eignarhlut í finnska flugfélaginu Finnair og er því ekki lengur meðal hluthafa í Finnair.  Andvirði sölunnar er um 13,6 milljarðar ísl. króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FL Group.

„Sala hlutanna er í samræmi við stefnu FL Group að minnka vægi eignarhluta í skráðum félögum sem ekki falla undir kjarnafjárfestingar félagsins í fjármála, trygginga- og fasteignafélögum. Við leggjum nú mikla áherslu á stærstu eignarhluta FL Group í Glitni, Tryggingamiðstöðinni og Landic Property, auk fjölmargra fjárfestingaverkefna í óskráðum félögum í ýmsum greinum," segir  Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group í tilkynningunni.

Þá kemur einnig fram að salan hefur neikvæð áhrif á afkomu FL Group á fyrsta ársfjórðungi 2008 sem nemur um 1,7 milljörðum króna.