Flosi Hrafn Sigurðsson héraðsdómslögmaður hefur gengið inn í eigendahóp Opus lögmanna. Hann hefur starfað hjá stofunni óslitið frá útskrift frá lagadeild Háskóla Íslands á árinu 2010, en hann fékk réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður á því sama ári.

Flosi hefur aðallega starfað á persónuréttarsviði stofunnar þar sem hann hefur sinnt sifjamálum, erfðamálum og útlendingamálum auk þess sem hann hefur haft yfirumsjón með skiptamálum stofunnar, þrotabúum, dánarbúum og opinberum skiptum milli hjóna eða sambúðaraðila. Hann hefur jafnframt starfað sem stundakennari í refsirétti við Lagadeild Háskóla Íslands frá árinu 2013.

Þá hefur fyrirtækið einnig bætt við sig tveimur nýjum starfsmönnum, þeim Örnu Pálsdóttur hdl. og Árna Þór Finnssyni hdl.