Félag íslenskra atvinnuflugmanna samþykkti kjarasamning við Icelandair sem skrifað var undir þann 19. júlí.

Atkvæði greiddu 181 með samningnum en mótfallnir voru 41. Átta sátu hjá. Kjörsókn var 82%.

Samningurinn gildir til þriggja ára og inniheldur svipuð endurskoðunarákvæði og samningur ASÍ og SA.