Peningamarkaðssjóðir rekstrarfélaga verðbréfasjóða hafa ekki heimild til að fjárfesta í hlutabréfum, hvorki innlendra né erlendra.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem send er út af gefnu tilefni frá Fjármálaeftirlitinu.

Þar kemur fram að Fjármálaeftirlitið fylgist reglulega með fjárfestingum peningamarkaðssjóða og hafa engar fjárfestingar verið í hlutabréfum. Þá er staðfest að engin hlutabréf er að finna í núverandi eignasafni þeirra.