Fjármálaeftirlitið hefur beint þeim tilmælum til rekstrarfélaga verðbréfasjóða að grípa til aðgerða sem leiða til þess að  peningamarkaðssjóðum félaganna verði slitið. Þetta kemur fram á vef FME.

„Þeim tilmælum er beint til rekstrarfélaganna að ekki verði opnað fyrir innlausnir í sjóðunum, heldur að sjóðsfélagar fái greitt úr þeim. Í því felst að allt laust fé hvers peningamarkaðssjóðs verði greitt inn á innlánsreikninga sjóðsfélaga í hlutfalli við eign þeirra og jafnræði þeirra verði haft að leiðarljósi," segir í tilmælunum.

Í tilmælunum er einnig lagt til að greitt verði mánaðarlega inn á innlánsreikninga sjóðsfélaga í samræmi við hlutfallslega eign þeirra eftir því sem aðrar eignir sjóðsins fást greiddar, uns engar eignir eru eftir í eignasafni sjóðanna.