Fjármálaeftirlitið (FME) hefur orðið við beiðni stjórnar VBS fjárfestingabanka að skipa bankanum bráðabirgðastjórn, þar sem bankinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þetta kemur fram á vefsíðu FME. Hróbjartur Jónatansson hrl. er formaður stjórnar, Þórey S. Þórðardóttir hrl. á einnig sæti í stjórn sem og Friðbjörn Björnsson endurskoðandi.