Helgi Björn Kristinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri tekjusviðs 365, segir í fréttatilkynningu.

Hann mun hafa umsjón með auglýsinga-, áskrifta- og sértekjum fyrirtækisins. Helgi starfaði sem sölu og markaðsstjóri Plastprents frá árinu 2001. Áður starfaði hann sem sölustjóri hjá Toyota og við markaðsrannsóknir og ráðgjöf hjá PWC.

Helgi hefur lokið BA prófi í stjórnmálafræði frá HÍ og viðskipta- og rekstrarfræði frá Endurmenntun HÍ. Hann útskrifaðist með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík í vor. Helgi er giftur Helgu Ólafs og eiga þau þrjú börn.