Ford bílaframleiðandinn hyggst einbeita sér í mun meira mæli að framleiðslu lítilla bíla. New York Times greinir frá þessu í dag.

Samkvæmt New York Times mun Ford tilkynna um þessar fyrirhuguðu aðgerðir á fimmtudag þegar uppgjör félagsins á 2. ársfjórðungi verður kynnt.

Ford mun einbeita sér að framleiðslu sparneytinna véla og breyta þremur jeppaverksmiðjum sínum þannig að þær framleiði framvegis litla fólksbíla.

Talsmaður Ford vildi ekki tjá sig um þessar fréttir.