„Ég hef forðast þessa spurningu eins og heitan eldinn," segir Andri Snær Magnason rithöfundur þegar hann er spurður að því í Fréttablaðinu í dag hvort hann hafi hugsað sér að bjóða sig fram til forseta.

„Vinkona mín spurði um þetta og ég hugsaði: Þori ég? Get ég? Vil ég?" segir Andri Snær og bætir því við að eina ástæðan fyrir því að hann hafi ekki svarað spurningunni neitandi sé að hann nú séu áhugaverðir tímar.

EIns og flestir vita tilkynnti Ólafur Ragnar Grímsson, í nýársávarpi sínu í gær, að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri í vor.