Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í samráði við ríkisstjórnina ákveðið að fresta opinberri heimsókn sinni til Þýskalands, en hún var fyrirhuguð síðar í þessum mánuði.

Forsetinn sendi Horst Köhler forseta Þýskalands bréf þessa efnis í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands.