Ríkisstjórn Íslands metur mikils að bresk stjórnvöld hyggjast tryggja að eigendur Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi muni ekki tapa peningum á viðskiptum við Icesave.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forsætisráðherra en eins og kunnugt er tilkynntu bresk stjórnvöld í morgun að þau myndu ábyrgjast innlán viðskiptavina Icesave.

Í leiðinni lýstu bæði forsætis- og fjármálaráðherra Bretlands yfir óánægju sinni með afstöðu íslenskra stjórnvalda vegna málsins og hótaði Gordon Brown, forsætisráðherra þeim málsókn.

Í yfirlýsingu frá forsætisráðherra Íslands kemur fram að ríkisstjórnir landanna meti nú stöðuna og leita að viðunandi lausn fyrir alla aðila.

Þá kemur fram að með breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta eru innstæður gerðar að forgangskröfum ef kemur til skiptameðferðar.

„Góðar líkur eru á að eignir Landsbankans muni standa undir stærstum hluta innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi,“ segir í yfirlýsingunni.

Yfirlýsing forsætisráðherra er birt hér í heild sinni:

Ríkisstjórn Íslands metur mikils að bresk stjórnvöld hyggjast tryggja að eigendur Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi muni ekki tapa peningum á viðskiptum við Icesave.

Ríkisstjórnir landanna meta nú stöðuna og leita að viðunandi lausn fyrir alla aðila.

Með breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta eru innstæður gerðar að forgangskröfum ef kemur til skiptameðferðar. Góðar líkur eru á að eignir Landsbankans muni standa undir stærstum hluta innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi.

Ríkisstjórnin ítrekar að ríkissjóður mun styðja Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta við öflun nægjanlegs fjár.

Ríkisstjórn Íslands er staðráðin í að láta ekki núverandi stöðu á fjármálamörkuðum skyggja á áralanga vináttu Íslands og Bretlands.