Geir H. Haarde forsætisráðherra mun í dag ávarpa Oxford Union, málfundafélag stúdenta við Oxford-háskóla. Þá flytur forsætisráðherra ræðu á jólafundi Sænska viðskiptaráðsins í Stokkhólmi fimmtudaginn 29. nóvember n.k.

Á báðum stöðum mun hann fjalla um þróun efnahagsmála á Íslandi.