Um helgina verður starf forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur (OR) auglýst laust til umsóknar í dagblöðum.

„Mikill metnaður er lagður í að ráðningarferlið sé faglegt og mun matsnefnd leggja mat á umsækjendur og gera tillögu til stjórnar. Það er stjórn OR sem ræður forstjóra fyrirtækisins. Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2011.

Núverandi forstjóri OR, Helgi Þór Ingason, var í ágúst síðastliðnum ráðinn tímabundið til starfans og verður hann ekki á meðal umsækjenda samkvæmt samkomulagi sem gert var við ráðningu hans.

Á vef OR www.or.is er að finna auglýsinguna og ítarlegar upplýsingar um ráðningarferlið,“ segir í tilkynningu frá Orkuveitunni.