Reykjavík hefur verið verið valin besti MICE áfangastaður í Evrópu af tímaritinu Business Destination en MICE stendur fyrir „Meetings, Incentives, Conferences and Events“ eða fundir, hvataferðir, ráðstefnur og viðburðir. Tilkynnt var um verðlaunin í síðustu viku en verðlaunin koma í kjölfar metárs í komu viðburða- og hvataferða gesta sem fjölgaði um 21% í Reykjavík á liðnu ári og voru í fyrsta skipti yfir 100.000 að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þorsteinn Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri Ráðstefnuborgar Reykjavíkur (Meet in Reykjavík) segir þetta mikinn áfanga og viðurkenningu á því öfluga starfi sem unnið hefur verið af Reykjavíkurborg og aðildarfélögum í Ráðstefnuborg Reykjavíkur.

„Ráðstefnu- og hvataferðagestir eru vaxandi markhópur hér á landi. Það hefur verið áætlað að hver MICE-ferðamaður skili um tvöfalt meiri tekjum en aðrir ferðamenn og að afleidd jákvæð áhrif af komu slíkra ferðamanna á lykilatvinnuvegi og háskóla landsins reiknast rúmlega tvöföld upphæð til viðbótar,“ er haft eftir Þorsteini í tilkynningunni.

„Það ættu því að vera sameiginleg markmið okkar allra að auka hlutdeild hópsins. Þessi verðlaun setja okkur í flokk með helstu ráðstefnuborgum Evrópu og viðbúið að þau komi okkur í valmengi fjölda kaupenda af slíkri þjónustu.“

Áshildur Bragadóttir forstöðumaður Höfuðborgarstofu og stjórnarformaður Meet in Reykjavík tekur í sama streng. „Þetta eru ánægjuleg tíðindi og ljóst að þau munu hafa jákvæð áhrif á afar mikilvægan hóp þeirra sem ákveða hvar skuli halda ráðstefnur. Við höfum lagt áherslu á að fá MICE ferðamenn til landsins,“ segir Áshildur.

„Þetta er sá hópur ferðamanna sem skilar einna mestu til þjóðarbússins og þá koma 80% þeirra utan háannar. Það er greinilegt að við erum á réttri leið þegar kemur að þessum markaði enda getum við boðið uppá eitt glæsilegasta ráðstefnuhús í Evrópu  og önnur gæði og þjónustu sem þessi hópur krefst.“

Verðlaun tímaritsins Business Destination eru ein þau virtustu sem veitt eru þjónustuaðilum viðskiptaferða. Þau eru veitt í nokkrum flokkum sem tengjast viðskiptaferðum og hafa íslenskir þjónustuaðilar verið sigursælir undanfarin ár.

Í fyrra hlaut Harpa verðlaun sem besta ráðstefnhús Evrópu og árið á undan var Fríhöfnin í Leifstöð valin besta flugvallarfríhöfnin. Fjölbreyttur hópur stjórnenda fyrirtækja og félagasamtaka sem kaupir og skipuleggur viðskiptaferðalög auk viðskiptaferðamanna  velja sigurvegara á hverju ári.