Í gær var tekin fyrsta skóflustungan að fyrstu bensínstöð Atlantsolíu í Reykjavík. Bensínstöðin mun rísa á lóðinni við Bústaðaveg 151 oft kölluð Sprengisandslóð. Áætlað er að bensínstöðin verði tilbúin eftir um þrjá mánuði en framkvæmdir eru í höndum Verktaka Magna. Bensínstöðin verður útbúin tveimur dælum með aðstöðu fyrir fjórar bifreiðar til að taka eldsneyti. Allur búnaður verður af nýjustu gerð. Þannig verða dælur með afsogunarbúnaði sem hindrar loftmengun og uppgufun verður að bensíni.

Það var Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem tók skóflustunguna í 19 tonna hjólaskóflu og um leið hófust framkvæmdir.