Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,4% í mars frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Helsti áhrifavaldur til hækkunar á vísitölunni var framleiðsluverð fyrir stóriðju, en það hækkaði um 5,0% milli mánaða. Áhrif á vísitöluna námu 1,7%. Þá hækkaði framleiðsluverð fyrir sjávarafurðir um 1,6% (vísitöluáhrif 0,5%). Vísitala fyrir matvæli lækkaði hins vegar um 0,3% (-0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,2% milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 3,3% (2,4%).

Miðað við mars 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 15,9% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 13,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 31,5% en verð á matvælum hefur staðið í stað.