Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 3,6% milli apríl og maí 2017. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Sjávarafurðir lækkuðu um 4,2%, afurðir stóriðju lækkuðu um 5,8% og matvæli hækkuðu um 0,1%.

Miðað við maí 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 9,7%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 13,7% og annar iðnaður lækkað um 22,2%. Afurðir stóriðju hafa lækkað um 0,2% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 8,8% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 11,4%.