Lögð verður sú ábyrgð á framleiðendur raftækja að kynna fyrir almenningi hvaða tækjum hann eigi að skila til söfnunarstöðva úrgangs, þegar líftíma tækjanna lýkur, samkvæmt frumvarpi um breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs, sem Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur mælt fyrir. Megin markmið frumvarpsins er að draga úr magni raftækjaúrgangs, auka endurnýtingu og endurnotkun á slíkum úrgangi og vinna að aukinni umhverfisvitund allra sem höndla með vöruna.

Frumvarpið byggir á svokallaðri framleiðendaábyrgð og samkvæmt henni eru settar skyldur á framleiðendur og innflytjendur til að fjármagna, safna, meðhöndla og endurnýta eftir atvikum raftækjaúrgang.

Verða að kynna hverju á að skila

Notendur raftækja á heimilum munu samkvæmt frumvarpinu geta skilað raftækjaúrgangi á almennar söfnunarstöðvar í sveitarfélögum, án þess að greiða fyrir það. Það eru því framleiðendur sem eiga að fjármagna a.m.k. söfnun frá söfnunarstöðvum og meðferð, endurnýtingu og förgun á raftækjaúrgangi. Þannig skal hver framleiðandi bera ábyrgð á því að fjármagna meðferð úrgangs frá eigin framleiðslu.

Það verður hins vegar á ábyrgð framleiðenda að kynna fyrir almenningi hvaða tækjum beri að skila til söfnunarstöðva. Frumvarpið var samið af nefnd sem umhverfisráðuneytið skipaði en í henni sátu fulltrúar ráðuneytisins, Félags íslenskra stórkaupmanna, Umhverfisstofnunar, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.