Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2019. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins .

Um framlögin gilda lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk mest eða 178 milljónir, næstmest fengu Vinstri grænir eða 128 milljónir. Minnst fékk Viðreisn eða 55,9 milljónir.