Ríkisstjórnin þarf að tilkynna Má Guðmundssyni seðlabankastjóra í síðasta lagi á fimmtudaginn í næstu viku ef hún hyggst auglýsa stöðu hans lausa til umsóknar. Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna ber að tilkynna skipuðum embættismönnum um slíkt eigi síðar en sex mánuðum áður en skipunartími rennur út. Á fimmtudaginn eru sex mánuðir þar til skipunartími hans rennur út en hann var skipaður seðlabankastjóri 20. ágúst 2009.

Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst hefur Má ekki verið tilkynnt um að staðan verði auglýst. Fari svo að honum verði ekki tilkynnt um slíkar fyrirætlanir þá framlengist skipunartími hans sem seðlabankastjóri sjálfkrafa um önnur fimm ár. Ef staðan verður auglýst þá getur Már sótt um að vera áfram en samkvæmt lögum er einungis hægt að skipa sama manninn seðlabankastjóra tvisvar sinnum.

Þess má geta að skipunartími Arnórs Sighvatssonar aðstoðarseðlabankastjóra framlengdist sjálfkrafa um fimm ár á síðasta ári. Staðan var ekki auglýst og Arnór því skipaður áfram aðstoðarseðlabankastjóri í fimm ár frá og með 1. júlí 2013.