Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing tilkynnti í byrjun vikunnar að nýjasta flaggskip félagsins, 787 Dreamliner yrði tilbúin til reynsluflugs nú í sumar en afhending á vélinni hefur nú tafist um tæpt ár og reynsluflugið um tvö ár.

Tæknistjórar Beoing vinna nú hörðum höndum að því að klára vélina, sem hefur þegar farið í gegnum nokkrar prufur – þó ekki reynsluflug. Búið að er þrýstijafna vélina og í raun er líkan vélarinnar að verða tilbúið. Hins vegar á eftir að prófa lendingarbúnað hennar (sem er gert í sérstökum vélum) og enn á eftir að klára rafmagnskerfi hennar.

Þá munu síðustu prófanir á eldsneytistönkum vélarinnar fara fram á næstu dögum og vikum en þær prófanir fara þannig fram að þeir eru fylltir af vökva sem bólgnar út en þannig má sjá hvað eldsneytistankarnir þola mikinn þrýsting.

886 vélar pantaðar

Ef allt gengur að óskum nú sér Boeing fram á að geta afhent fyrstu vélina til notkunar í byrjun næsta árs, þá tveimur árum á eftir upprunalegri áætlun upphaflega var gert ráð fyrir því að fyrsta vélin yrði afhent í maí 2008.

Vélin er, líkt og aðrar vélar Boeing, sett saman í Everett í Washington fylki, rétt norðan við Seattle þó einstaka partar hennar séu framleiddir víðs vegar um heiminn.

Ástæðurnar fyrir töfinni á framleiðslu hennar er fyrst og fremst hægagangur birgja með varahluti, síendurtekinni þróunarvinnu á rafmagnsbúnaði hennar og ekki bætti sex vikna verkfall flugvirkja Boeing í september s.l. úr skák en þá stöðvaðist framleiðslan í nær átta vikur (það tekur tíma að koma framleiðslunni í gang á ný þó flugvirkjarnir séu mættir til vinnu).

Nú þegar hafa 886 vélar verið pantaðar af 57 flugfélögum. Nokkuð hefur þó verið um afpantanir vegna þeirrar tafa sem þegar hafa orðið og þeir viðskiptavinir sem ekki hafa snúið sér til helsta samkeppnisaðilans, Airbus hafa ýmist fengið afhentar 737 vélar eða 777 vélarnar sem nú eru nýjasta framleiðsla Boeing.

Það er mikilvægt að Beoing nái að afhenda vélarnar strax á næsta ári því flugfélög klára ekki að greiða fyrir vélarnar fyrr en þær eru afhentar.

Átta vélar notaðar í prófanir

Beoing sýndi blaðamönnum framleiðsluna fyrir helgi á vélunum en í verksmiðju félagsins eru nú átta vélar og flestar þeirra nærri því tilbúnar. Tvær þeirra verða notaðar í fyrrgreind próf á jörðu niðri, svo sem prófanir á eldsneytistönkum og þær vélar munu aldrei fljúga. Hins vegar verða hinar sex vélarnar notaðar í reynsluflug en samkvæmt reglu bandarískra flugmálayfirvalda þarf að fljúga vélunum í 3.500 klukkustundir á 8-9 mánaða tímabili áður en þær eru „vottaðar“ ef þannig má að orði komast.

Icelandair Group á pantaðar fimm vélar – en töfin hefur lítið áhrif á félagið

Í ársbyrjun 2005 samdi Icelandair Group um kaup á 787 Dreamliner en félagið á nú pantaðar fimm vélar. Til stóð að afhenta tvær þeirra árið 2010, aðrar tvær árið 2012 og loks eina árið 2013.

Ljóst er að einhver töf verður á afhendingu til Icelandair Group en óljóst hversu mikil hún verður. Það mun þó ekki hafa mikil áhrif á rekstur félagsins þar sem ekki hefur verið gert ráð fyrir vélunum í rekstri samstæðunnar. Þannig munu vélarnar að öllum líkindum verða nýttar í leiguflug og jafnvel leigðar frá félaginu. Ekki ert gert ráð fyrir þeim í núverandi ætlunarleiðum Icelandair (rétt er að gera hér greinarmun á Icelandair og móðurfélaginu Icelandair Group sem rekur 69 vélar).

Einstaklega sparneytin og langfleyg lúxusvél

787 Dreamliner á að vera einstaklega sparneytin og langfleyg. Þannig er talið að hún muni spara flugfélögum talsverðar fjárhæðir í eldsneytiskostnað auk þess sem hún þykir mjög umhverfisvæn. Hönnun og framleiðsla vélarinnar byggir á nýrri tækni. Hún mun nota um 20% minna eldsneyti en flugvélar dagsins í dag, býður upp á 45% meira fraktrými, en munurinn á aðbúnaði farþega mun eflaust vekja mesta athygli. Innréttingar verða töluvert frábrugðnar því sem nú tíðkast, rakastig um borð verður hærra og líkara því sem er á jörðu niðri, sæti og gangar verða breiðari, gluggar um tvöfalt stærri en nú tíðkast og allur tækni- og afþreyingarbúnaður um borð verður fyrsta flokks.