Heildarsala skuldabréfa í september 2009 nam 728 milljónum króna samanborið við 16,6 milljarða króna mánuðinn áður.

Einu skuldabréfin sem seld voru í september voru verðtryggð skuldabréf sveitafélaga samkvæmt nýjum Hagtölum Seðlabankans.

Það sem af er ári nemur heildarsala skuldabréfa tæpum 198,3 milljörðum króna. Þar af nemur sala á verðtryggðum skuldabréfum rúmum 42 milljörðum en sala á óverðtryggðum bréfum rétt rúmum 156 milljörðum króna.

Af verðtryggðu skuldabréfunum hefur mesta salan verið á Íbúðabréfum eða rúmir 15,7 milljarðar króna. Þá nemur heildarsala skuldabréfa sveitafélaga rúmlega 9,1 milljarði króna en bréf annarra lánastofnana um 7,7 milljörðum króna.

Ríkisbréf eru hins vegar langmest seldu bréfin í formi óverðtryggðra skuldabréfa, eða um 146,7 milljarðar króna – og hefur eins og gefur að skilja ekkert breyst milli mánaða. Bréf fyrirtækja í flokki óverðtryggðra skuldabréfa tæpum 9,4 milljörðum.

Á sama tíma í fyrra nam heildarsala skuldabréfa tæpum 250,3 milljörðum króna en helsti munurinn var í formi verðtryggðra skuldabréfa sem þá námu um tæpum 87,4 milljörðum króna. Sala óverðtryggðra skuldabréfa er á svipuðu reiki á milli ára en á sama tíma í fyrra námu þau tæplega 162,9 milljörðum króna.