Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti lífeyrissjóður smáþjóða af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE). Tímaritið valdi lífeyrissjóðinn þann besta á Íslandi á árunum 2009 til 2011. Í ár og árið 2012 voru ekki veittar viðurkenningar fyrir Ísland sérstaklega heldur keppa sjóðir frá Íslandi nú í flokki smáþjóða, eins og sjóðir átta annarra Evrópulanda með færri en eina milljón íbúa.

IPE er eitt virtasta fagtímarit Evrópu um lífeyrismál. Árlega veitir tímaritið þeim lífeyrissjóðum verðlaun sem að mati sérfræðinga IPE hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu. Breski lífeyrissjóðurinn Pension Protection Fund var valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu að þessu sinni.

Fram kemur í tilkynningu frá Frjálsa lífeyrissjóðnum að í umsögn dómnefndar kom meðal annars fram að góð ávöxtun sjóðsins hafi verið byggð á framsýnum fjárfestingarákvörðunum og öflugri áhættustýringu.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 130 milljarðar að stærð og eru sjóðfélagar um 47 þúsund talsins.