Frosti Sigurjónsson, forstjóri Dohop, segir að krónan geti ekki rétt úr kútnum fyrr en henni er leyft finna botninn. "Krónan er að flestra mati allt of lágt skráð í dag en þrátt fyrir það getur hækkunarferlið ekki hafist fyrr en botninn finnst. Hann finnst ekki fyrr en eigendur þessara 170 milljarða sem nú sitja á gjaldeyrisreikningum í bönkunum byrja að kaupa krónur því þeir telja ólíklegt að hún lækki frekar."

Þetta kemur fram í samtali við Viðskiptablaðið. Þar segir Frosti enfremur: ,,Þá hefst styrkingarferlið og þegar það er á annað borð hafið gæti krónan styrkst um tugi prósenta á fáeinum dögum og náð sínu rétta gengi. Seðlabankinn þarf að leyfa krónunni að finna sinn botn og hann má ekki nota varasjóðinn til að tefja það ferli."