Í dag mun BIOEFFECT opna sína fyrstu sérverslun á Íslandi í samstarfi við danska aðila sem ku hafa mikla þekkingu á smávöruverslun í Danmörku, Finnlandi og á Íslandi, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

„Verslunin er staðsett í Hafnarstræti 19 í húsi sem var byggt árið 1925 og hýsti áður Rammagerðina. Húsið var nýlega gert upp í sinni upprunalegu mynd og er í dag bogalagað í austurátt og minnir óneitanlega á "straujárnið" fræga í New York. Arkitektastofan Basalt var fengin til að hanna verslunina og notuðu þau til dæmis ylplast í innréttingar og lýsingu sem er sama efni og notað er í gróðurhús. Er það vísun til gróðurhúss ORF Líftækni í Grindavík þar sem byggið er ræktað sem notað er í vörur BIOEFFECT,“ segir í tilkynningunni.

„Undanfarin ár höfum við lagt mikla vinnu í að efla ásýnd og styrk BIOEFFECT vörumerkisins, bæði hér innanlands og erlendis. Það að tryggja rétta framsetningu á vörunum okkar og þar með betri upplifun fyrir viðskiptavini hefur verið einn af hornsteinum þessarar vegferðar. Við höfum til að mynda fækkað útsölustöðum hér á landi en lagt þeim mun meiri kraft í að tryggja gæði þeirra sem eftir standa á sem flestan máta. Það hefur lengi verið draumur okkar að opna BIOEFFECT verslun og nú hefur sá draumur ræst. Það má segja að þetta sé rökrétt framhald af áðurnefndri vegferð, enda getum við gengið enn lengra í að tryggja rétta framsetningu og upplifun í okkar eigin búð. Búðin endurspeglar frábærlega það vörumerki sem við erum að byggja upp og er vonandi sú fyrsta af mörgum ef horft er lengra inn í framtíðina og út fyrir landsteinana," segir dr. Björn Örvar, einn stofn­enda ORF líf­tækni og vis­indamaður­inn á bak við húðvörumerkið, í tilkynningunni.

„BIOEFFECT er selt um allan heim í samstarfi við aðra smásöluaðila en þetta verður fyrsta sérverslun okkar. Það hefur verið mikill vöxtur hjá BIOEFFECT síðustu ár og er það mikill kostur að geta boðið okkar viðskiptavinum, erlendum og innlendum, upp á sérverslun þar sem okkar sérfræðingar útskýra vörurnar, en í versluninni verður hægt að fá húðmælingu og almenn ráð varðandi umhirðu húðarinnar auk þess að versla alla vörulínu BIOEFFECT," er haft eftir Elísabetu Austmann, framkvæmdastjóra markaðssviðs ORF Líftækni.

Í tilkynningunni segir jafnframt að í BIOEFFECT vörulínunni séu nú 13 ólíkar vörur sem skipta megi í þrjá flokka: undirstaða, uppbygging og umhirða húðarinnar. Undirstöðuvörurnar séu hannaðar fyrir daglega húðumhirðu til notkunar á hverjum degi og uppbyggingarvörurnar séu hins vegar ætlaðar til að taka húðina í gegn nokkrum sinnum á ári. Loks séu það umhirðuvörurnar sem undirbúa húðina fyrir EGF sem er aðalinnihaldsefni vara BIOEFFECT.