Þeir félagar Björgólfur Thor Björgólfsson og Skúli Mogensen voru í stuttu viðtali í Pressunni 10. september árið 1992. Þá höfðu þeir ákveðið að opna skemmtistaðinn Tunglið á ný.

Fyrir þá sem ekki muna var Tunglið til húsa við Lækjargötu þar sem Nýja bíó var eitt sinn. Fyrirsögn fréttarinnar var „Tunglið enn og aftur“ og í myndatextanum sagði: „Þeir Skúli og Björgólfur eru vanir að láta verkin tala og skeyta því engu þótt staðurinn hafi rúllað nokkrum sinnum.“