Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í viðtali í Frjálsri verslun árið 1997 þegar hún var deildarstjóri hjá Ríkisútvarpinu. Í viðtalinu kemur fram að Þorgerður sjái um svæðisútvörpin og fylgist með fjárhagshliðinni. Undir myndinni er hún sögð vera hestamaður, móðir og handboltadómari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan, en Þorgerður fór á þing árið 1999 og hyggst hætta á þingi næsta vor.