Gamma
Gamma
© BIG (VB MYND/BIG)
Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,4% í dag í 17 milljarða viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 2,1 milljarðs viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 1,1% í 14,9 milljarða króna viðskiptum.

Samtals hækkaði GAMMA: GBI um 1,1% í vikunni, GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,8% og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 1,6%.

Meðal dagsvelta í vikunni var 11,1 milljarður króna, þar af 2,8 milljarðar með verðtryggt og 8,3 milljarðar með óverðtryggt.