Heildarvelta með skuldabréf nam rúmlega 13,5 milljörðum króna í dag. Þar af nam velta með verðtryggð íbúðabréf um 6 milljörðum króna en velta með óverðtryggð ríkisbréf um 7,5 milljörðum króna.

Skuldabréfavísitala Gamma, GBI hækkaði um 0,2% og stendur nú í 171,5 stigum. Þá hefur GBI hækkað um 0,5% s.l. viku en um 2,3% s.l. mánuð.

Þetta kemur fram í upplýsingum frá GAM Management (GAMMA) en félagið birtir skuldabréfavísitölu sína daglega.