Áformað er, að Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins gangi á fund forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum á morgun, miðvikudaginn 23. maí, kl. 9:30. Þetta kemur fram í frétt frá skrifstofu forseta Íslands.

Fundurinn verður endanlega staðfestur á heimasíðu embættis forseta Íslands (forseti.is) í kvöld.