Gengi hlutabréfa Eimskips hækkaði um 1,88% í Kauphöllinni í dag. Ekki voru mikil viðskipti á bak við gengishækkunina eða upp á 13 milljónir króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marel um 0,88%, Regins um 0,62%, N1 um 0,28% og Sjóvár um 0,15%.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,12%, Vodafone um 0,15%, Haga um 0,12% og VÍS um 0,11%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,08% og endaði hún í 1.185 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam tæpum 760 milljónum króna. Mest voru viðskipti með hlutabréfa Haga upp á 213 milljónir og Icelandair Group upp á 207 milljónir.