Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,12% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa Haga hækkaði um 1,26%, en ekkert annað félag hækkaði í verði í dag. Gengi bréfa Eimskips lækkaði um 0,74%, Icelandair um 0,68% og VÍS um 0,59%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 472 milljónum króna.

Þá bætist við 289 milljóna króna velta með bréf Hampiðjunnar, sem er á First North markaði Kauphallarinnar, en 24,7 milljónir hluta í fyrirtækinu skiptu um hendur í dag án þess að það hefði áhrif á gengi bréfa félagsins.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,16% í dag. Verðtryggði hluti hennar lækkaði um 0,15% og sá óverðtryggði um 0,20%. Velta í viðskiptum með bréf í vísitölunni nam 6,6 milljörðum króna.