Úrvalsvísitala kauphallarinnar lækkaði um 0,1% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.382,76 stigum. Gengi bréfa Haga hækkaði um 2,08%, Össurar um 1,79% og HB Granda um 1,27%. Hins vegar lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,40% og Eimskipafélagsins um 0,61%.

Velta með hlutabréf á Aðalmarkaði nam 1.461,8 milljónum króna og var veltan mest með bréf Icelandair, eða 478,4 milljónir króna. Velta á skuldabréfamarkaði nam 2.476,5 milljónum króna og heildarvelta í kauphöllinni því rúmir 3,9 milljarðar króna.