Bréf HB Granda hækkuðu mest í viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Hækkunin nam 1,64% en velta með bréfin nam 149 milljónum króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa N1 um 0,54%, Haga um 0,22% og Marels um 0,2%.

Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair um 0,85%, TM um 0,61% og Vodafone um 0,46%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,05% og nam 1.144 stigum í lok dags. Heildarvelta með hlutabréf nam 363 milljónum króna.