Gengi hlutabréfa N1 féll um 2,07% í 101 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta gengislækkun á hlutabréfamarkaði. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,44%, Icelandair Group um 1,4%, Eimskips um 1,28%, VÍS um 1,18% og Sjóvár um 0,79%.

Á móti hækkaði gengi bréfa HB Granda um 2,52%, Marel um 0,68% og TM um 0,19%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,54% og endaði hún í 1.177 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam 1,2 milljörðum króna. Mest var veltan með hlutabréf HB Granda eða fyrir 347 milljónir króna.