Gengi hlutabréfa Icelandair hækkaði um 1,4% í Kauphöllinni í dag í mikilli veltu með hlutabréfin í Kauphöllinni í dag. Nam veltan 261 milljón króna og var þetta mesta gengishækkun dagsins. Í sama tíma hækkaði gengi bréfa Haga um 0,67%, HB Granda um 0,5%, Regins um 0,32% og N1 um 0,27%.

Þá lækkaði gengi bréfa Sjóvár um 0,81%, TM um 0,4%, Össurar um 0,31% og Vodafone um 0,15%.

Þá hækkaði gengi úrvalsvísitölunnar um 0,55% og endaði hún 1.157 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam 514 milljónum króna.