Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,19% í dag. Gengi bréfa Regins lækkuðu um 1,11%, Icelandair um 0,60% og Eimskips um 0,36%. Bréf Fjarskipta hækkuðu um 0,15%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 468,7 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um ein 0,54% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,42% og sá óverðtryggði um 0,86%. Velta á skuldabréfamarkaði í dag nam 29,5 milljörðum króna og var langstærstur hluti hennar í viðskiptum með óverðtryggð bréf, að 22,7 milljarðar.