Gengi hlutabréfa TM féll um 3,29% í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í dag. Það stendur nú í 25 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan það var skráð á markað á miðvikudag í síðustu viku. Fram kom í máli Páls Harðarsonar, forstjóra Kauphallarinnar, í viðtali í Kastljósinu á RÚV í gærkvöldi að Fjármálaeftirlitið hyggist fara yfir hlutafjárútboð TM.

Fram kemur komið að í útboði TM skráðu fjárfestar sig fyrir hlutabréfum fyrir 357 milljarða króna. Endanlegt söluandvirði hlutarins var í hæsta enda útboðsgengisins, 4,4 milljjarðar króna.

Páll sagði væntingar hafa verið um mikla eftirspurn. Það hafi líklega valdið því að margir buðu hærri fjárhæðir en þeir reiknuðu með að fá. Hugsanlega hafi einhverjir boðið hærri fjárhæðir en þeir voru borgunarmenn fyrir, sem hann taldi alvarlegt. Viðskiptablaðið fjallaði jafnframt um málið í síðustu viku og sagði dæmi um að greiðslugeta fjárfesta hafi ekki verið könnuð.

„Við höfum átt samtal við Fjármálaeftirlitið um þessi atriði. Fjármálaeftirlitið tekur þetta alvarlega og ætlar að fara yfir framkvæmd útboðanna og þessi mál öll. Það er samhljómur um þetta á markaði. Það er rétt að staldra við og fara yfir alla þessa framkvæmd til að fyrirbyggja slys í framtíðinni,“ sagði Páll.

Í Kastljósinu var vísað til umfjöllunar í síðasta tölublaði Viðskiptablaðsins um hlutabréfamarkaðinn og útboðin með hlutabréf VÍS og TM. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð.