Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 1,9% í Kauphöllinni í dag í rúmlega 220 milljóna króna viðskiptum. Þá hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,22%. Á móti hækkaði gengi bréfa Marel um 0,64% og Haga um 0,28%.

Velta með bréf Össurar og Marel voru meira en helmingurinn af heildarveltunni í Kauphöllinni.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,46% í viðskiptum dagsins. Hún endaði í lok dags í tæpum 1.071 stigi.