Tap Orkuveitu Reykjavíkur nam 1,4 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2006 samanborið við 3,6 milljarða krónu hagnað á sama tímabili árinu áður, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Helsta skýring á mismuninum er gengistap vegna langtímaskulda, samtals 5,7 milljarðar króna, segir í tilkynningunni.

Rekstrartekjur fyrstu níu mánuði ársins 2006 námu um 12,3 milljörðum króna, en voru um 10.3 milljarðar fyrstu á sama tímabili í fyrra.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var 5,6 milljarðar króna, samanborið við 4,3 milljarða króna á sama tímabili 2005.

Afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna voru 3,2 milljarðar króna fyrstu níu mánuði 2006, en 2,4 milljarðar króna á sama tímabili 2005.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 6,6 milljarða króna fyrstu níu mánuði ársins 2006, en voru jákvæðir um 1,7 milljarða króna á sama tímabili árið áður.

Heildareignir 30. september 2006 voru 123,7 milljarðar króna, en voru 88 milljarðar króna 30. september 2005. Eigið fé 30. september 2006 var 58,6 milljarðar króna, en var 48,3 milljarðar í lok september 2005. Heildarskuldir 30. september 2006 voru 65,1 milljarðar króna, en voru 39.7 milljarðar króna 30. september 2005.

Eiginfjárhlutfall var 47,4% í lok september 2006 en var 54,9% á sama tíma árið áður.



Með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja verður fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. Laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Lögin koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006. Sá hluti starfsemi OR er lýtur að rekstri vatnsveitu og fráveitu verður þó áfram undanskilinn tekjuskatti. Reiknuð tekjuskattsinneign fyrstu 9 mánuði ársins nam 2.710 milljónum króna.

Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt. Gengistap Orkuveitu Reykjavikur af langtímaskuldum nam 5.721 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins. Gengisvísitala í lok september var 122,4 stig en var 104,9 stig í lok síðasta árs, segir í tilkynningunni.

Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2006. Umsvif fara vaxandi og fjárfestingar eru miklar. Stærsta einstaka verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins, segir í tilkynningunni.

Í ársbyrjun yfirtók Orkuveitan fráveitur eigenda Orkuveitunnar.