Á mælikvarða raungengis er krónan nú í námunda við jafnvægi og eru að okkar mati áhrifaþættir til styrkingar og veikingar krónunnar álíka sterkir, segir greiningardeild Landsbankans.

?Gera má ráð fyrir töluverðum sveiflum á næstunni. Þegar líður á árið gerum við ráð fyrir að krónan styrkist aftur og nálgist 120 stig,? segir greiningardeildin.