Hagstofa Íslands birti í gær frétt með bráðabirgðauppgjöri hins opinbera fyrir árið 2004. Samkvæmt fréttinni var afkoma sveitarfélaga neikvæð um 9,7 milljarða króna. "Af því tilefni telur félagsmálaráðuneytið ástæðu til að benda á að niðurstöðutölur um afkomu sveitarfélaga í frétt Hagstofunnar eru byggðar á uppgjöri samkvæmt þjóðhagsreikningakerfi sem er verulega frábrugðið og alls ekki samanbærilegt því hefðbundna bókhaldsuppgjöri sem ársreikningar sveitarfélaga eru gerðir eftir," segir í athugasemd ráðuneytisins.

Þar kemur einnig fram að munur uppgjörsleiðanna felst meðal annars í skilgreiningu og færslu skatttekna og meðhöndlun fjárfestinga, bókfærðra afskrifta og fjármagnsliða.

Ríki og sveitarfélög hafa sameinast um að rekstrarafkoma sveitarfélaga skuli metin út frá þeim almennu reikningsskilavenjum sem ársreikningar eru gerðir eftir. Flestar sveitarstjórnir eru nú að afgreiða ársreikning fyrir árið 2004 og munu ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga birta afkomutölur þegar þær liggja fyrir.

Þess má geta að samkvæmt fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2004 var áætluð rekstrarafkoma allra sveitarfélaga jákvæð um rúmlega 350 m.kr.