Alls var 634 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar sl., sem tæplega 119% fjölgun samninga á milli mánaða.

Þetta er mesti fjöldi samninga í einum mánuði frá því í september 2011 og þá hefur samningum ekki fjölgað jafn mikið á milli mánaða frá því að byrjað var að taka saman tölur um þinglýsta leigusamninga árið 2005 samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Þó bera að hafa í huga að aðeins 290 samningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í desember sem eru óvenjulega fáir samningar. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 19,5% á milli ára á síðasta ári.

Þá var 963 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í janúar sem þýðir fjölgun samninga um  tæp 95% á milli mánaða. Að sama skapi var það mesta hækkun frá því að byrjað var að taka tölur saman en samningum á landinu öllu fækkaði um 16,2% á milli ára í fyrra.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum hefur fækkað töluvert frá því að fjöldi þeirra náði hámarki haustið 2010. Svo virðist sem fjöldi leigusamninga taki kipp upp á við á sumrin og síðustu ár hefur fjöldinn einnig tekið kipp upp á við í janúar en síðan fækkað aftur með vorinu.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í janúar eða 102 samningum. Þá var 99 samningum þinglýst á Norðurlandi, 52 samningum á Suðurlandi og 50 samningum á Vesturlandi. Loks var 16 samningum þinglýst á Austurlandi og 10 samningum á Vestfjörðum.

Í fyrra, árið 2012, var alls 9.083 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við um 9.950 samninga árið 2011 og um 10.400 samningum árið 2010. Þar af var um 5.700 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við 6.350 samninga árið 2011 og um 6.850 árið 2010.

© vb.is (vb.is)