Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 77.000 en voru 65.600 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um 17% milli ára og er fjölgunin mest á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 47.600 í 61.000 eða um 28%. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði í janúar um rúm 6% á milli ára, úr 3.300 í 3.500.

Á öðrum landssvæðum varð fækkun gistinátta í febrúar.

Mest varð fækkunin á Suðurlandi um 22% og fækkaði gistinóttum úr 7.200 í 5.700 milli ára. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í febrúar um 21% á milli ára, eða úr 1.900 í 1.500. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða nam fækkun gistinátta  tæpum 5% milli ára, úr 5.400 í 5.200.   Fjölgun gistinátta á hótelum í febrúar má aðallega rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 25%  en gistinóttum útlendinga fjölgaði um rúm 14% milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.