Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 87.600 en voru 73.700 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 13.900 nætur eða tæplega 19% að því er kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem þeim fækkaði um tæp 2%, úr 6.900 í 6.800.

Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um rúmlega helming, fóru úr 1.700 í 2.700 milli ára (58% aukning). Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 11.900, úr 52.200 í 64.100 sem er 23% aukning. Á Norðurlandi nam fjölgunin 13% í mars, en fjöldi gistinátta fór úr 4.300 í 4.900 milli ára. Gistinætur á hótelum á Suðurlandi voru 9.100 í mars síðastliðnum en voru 8.500 í sama mánuði árið 2006 og fjölgaði þar með um rúm 7%.

Fjölgun gistinátta á hótelum í mars má eingöngu rekja til útlendinga þar sem gistinætur Íslendinga stóðu í stað milli ára.

Gistirými á hótelum í marsmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.656 í 3.866, 6% aukning og fjöldi rúma úr 7.419 í 7.861, 6% aukning. Hótel sem opin voru í mars síðastliðnum voru 72 en 73 í sama mánuði árið 2006.